logo
 

Tungumál í boði
 

Halló, og takk fyrir að stofna CrankWheel reikning!

Mig langar að hjálpa þér að fá sem mest útúr vörunni okkar. Þessvegna skrifaði ég seríu af tölvupóstum sem virka sem námskeið í notkun á CrankWheel.

Þetta er fyrsti tölvupósturinn af 8 í námskeiðinu. Ef þú vilt frekar, getur þú skoðað alla tölvupóstana strax.

Með CrankWheel þarftu aldrei aftur að spyrja "ertu farin(n) að sjá þetta?" Þú getur notað smágluggann í CrankWheel til að sjá hvað viðskiptavinur þinn sér og hvenær, og til að sjá hvort þau hafi þysjað inn á einungis hluta af því sem þú ert að sýna. Kíktu á eftirfarandi GIF mynd til að sjá hvernig það virkar:
banner
Prófaðu þetta núna:
  • Gangsettu CrankWheel með því að smella hér og velja "share a browser tab".
  • Nokkrir valmöguleikar á að tengja viðskiptavininn munu birtast. Notaðu þann efsta til að senda SMS í þinn eiginn snjallsíma.
  • Bíddu eftir að SMSið komi. Smelltu svo á hlekkinn í SMSinu.
  • Á snjallsímanum muntu sjá lítinn flipa sem útskýrir að þú sért að horfa á lifandi vídeó. Þú getur smellt á flipann til að minnka hann, og fært hann síðan frá ef þú vilt.
  • Prófaðu núna að skruna vefsíðunni sem þú ert að deila, eða hreyfa músina þína yfir vefsíðunni. Taktu eftir hvernig smáglugginn í CrankWheel viðmótinu á tölvuskjánum þínum uppfærist ekki fyrr en það sem þú sérð á snjallsímanum hefur uppfærst.
  • Prófaðu að þysja inn á eitthvað á snjallsímanum, og taktu eftir hvernig þú sérð þetta gerast í smáglugganum í CrankWheel viðmótinu.
Ræstu CrankWheel og prófaðu núna!
 
 
Getur verið að smáglugginn verði gagnlegur næst þegar þú vilt deila skjánum þínum með viðskiptavini?

Svo má skoða þetta vídeó um CrankWheel:
banner
Við erum með hjálparsíður fyrir notendur okkar, þar sem finna má lausnir á vandamálum og senda okkur aðstoðarbeiðnir. Vefslóðin er http://support.crankwheel.com. Einnig má senda allar fyrirspurnir eða beiðnir um aðstoð annaðhvort á support@crankwheel.com, eða beint til mín.

Þú fékkst þennan tölvupóst því þú ert skráður CrankWheel notandi. Á næstu 2-3 vikum muntu fá hina 7 tölvupóstana í þessu námskeiði. Einnig muntu fá fréttabréfið okkar af og til. Þú getur auðveldlega sagt upp ákveðinni áskrift eða öllum fjöldapóstum með því að smella á "afskrá mig" hér fyrir neðan eða í hvaða fjöldapósti frá okkur sem er.

Bestu kveðjur,
Jói í CrankWheel
 
 
samfélagsmiðlar okkar
linkedin   twitter   facebook  
 
 
Stuðningur við notendur er á vefsíðunni http://support.crankwheel.com en einnig má senda tölvupóst á support@crankwheel.com.
Þú fékkst þennan tölvupóst því þú ert skráður CrankWheel notandi.
Heimilisfang okkar er: CrankWheel ehf. Ármúli 6, Reykjavik 108, Ísland.
Höfundarréttur © 2016 CrankWheel ehf., Allur réttur áskilinn.

Bættu okkur í adressubókina þína  | Afskrá mig